|
|
21.04.2007 15:20:35 / andrea89
Mér finnst leiðinlegt að blogga. Ég ætla að blogga aftur næst
þegar mér byrjar að finnast það skemmtilegt! Update úr mínu lífi er
fáanlegt með því að hafa samband við mig á annan samskiptamáta (ef
bloggsíður eru samskiptamáti)
»
23.03.2007 00:45:35 / andrea89
Ákvað að deila með ykkur einstaklega skemmtilegum myndum af
okkur stöllum, Andreu, Sóleyju og Gunnhildi með klósettpappírsræmur
í hárinu, aðallega af því að ég er komin með leið á því að eiga
ekki myndavél og þetta var eina tækifærið sem ég hef fengið hingað
til til þess að taka myndir með þessari blessuðu vefmyndavél sem
fylgdi fartölvunni! Verði ykkur að því! 
Ein ekki alveg í fókus, enda við
ekki enn orðnar færar í faginu!
Ó já, smart smart smart!
Svipbrigðinekki alveg í samræmi!

Ekki frá því að Sóley nái
speglapósinu hennar Gunnu ansi vel á þessari!
Ein útúr belju
Aha, Gunnhildur í mó!
Orðið soldið þreytandi!
Læt þetta duga, enda einu
myndirnar sem teknar voru! 
Hérna erum við svo þegar toilett
pappírinn er búinn að gera sitt gagn og komin ofan í ólgandi
sjó!
The fantastic GAS!
Kv. Andrea
P.S. myndir komnar inná Tinnu síðu
oooog á leiðinni inná
sóleyjar!
»
19.02.2007 23:05:02 / andrea89
Ég skil ekki þá sem flokka Astrid Lindgren sem
barnabókahöfund!
Bróðir minn ljónshjarta er ein sú mest spennandi, dularfulla og
sorglegasta bók sem ég hef lesið og ég man núna ástæðu þess að ég
gat aldrei lesið hana á kvöldin þegar ég var lítil! Hún var hin
fullkomna veikindabók! Maður vaknaði veikur, tiplaði niður til
Diddu ömmu, undir sængina hennar og fékk kakó og las bróður minn
ljónshjarta. Bókin var líka svo löng að þó maður læsi allan daginn
brást það ekki að þegar hún var búin var ég orðin frísk!
Mig langar í fortíðina, þegar maður gat orðið veikur án
samviskubits, lesið án samviskubits og það var alltaf einhver
heima!
Sumarið er líka á næsta leyti, svona ef við ýtum á fast forward
og höldum honum inni þangað til prófin eru búin! Ég er í huganum
búin að plana að vinna á skemmtilegum stað, annaðhvort annað sumar
á hrafnistu eða sækja um á leikskóla. Útlandaferð, útilegu,
sumarbústaðaferðir, bjartar nætur í bænum, Gay Pride og
menningarnótt, kaffihúsaspjall og lautarferðir, fleiri Esjuferðir
og aðra Laugarvegsgöngu.
Ég þrífst á að skipuleggja fram í tímann, það heldur í mér
lífinu, sem er nú ekkert svo slæmt! Ég sé fram á það að eyða
helginni á Hellu í lúðrasveitarbúðum. Ég er ennþá að gera það upp
við mig hvort það sé slæmt eða gott. Er farin að hallast bara á
seinni kostinn!
Lærdómur núþálegra sagna 21-26 er framundan, sem og skipulagning
morgundagsins og góóóður nætursvefn.
Andrea kveður!

P.S. SALTKJÖT OG BAUNIR Á MORGUN! JEEEEEESS! 
»
15.02.2007 23:02:05 / andrea89
Dagurinn í dag minnti mig að mörgu leyti á hið einfalda en
þreytandi líf grunnskóla.
Ég eyddi engum pening,
ég kom með nesti,
ég fylgdist með og skildi í stærðfræði, meira að segja full af
metnaði,
dagurinn virtist langur þótt hann væri það í rauninni ekki,
ég fékk hvorki nammi né gos en það er það sem heldur mér
vanalega í stuði út daginn,
ég var pirruð af svengd sökum þess á leiðinni heim,
ég fór heim með Sóleyju eftir skóla til að læra,
ég fékk frostpinna og fannst það geggjað,
ég borðaði með pabba og Hjalta sem hefur ekki gerst... í
hundraðþúsund ár held ég,
ég fór á lúðasveitaræfingu og ég hafði líka metnað þar, í fyrsta
sinn í langan tíma!
Jebb... þetta var dagurinn minn! Hann var vesæll í fyrsta sinn í
langan tíma. Þrátt fyrir það stefnir allt í rólega en frábæra
helgi! Henni verður allavega startað á morgun með góðum
útivistarstund Ágústu og Andreu og þar tekur við náttfatakvöld, en
þannig hefur ekki verið haldið leeeeeeengi, stelpumyndir, trúnó og
megavika! Mmmm... laugardagurinn er svo enn óráðinn en hann verður
nýttur í að virkja sköpunargleðina og barnið í sjálfri
mér! Er meira að segja alvarlega að íhuga
splæsingu í mat eða nammi! Eitthvað Andreulegt!
Annars ákvað ég í dag að afvirkja skoðanakönnun mína sem
hefur verið í gangi soldið lengi. Úrslitin eru eftirfarandi:
Ástæða þess að ég setti inn könnunina á sínum tíma var
sú að því laust alltí einu inn í huga minn, þegar hann
átti síst von á, hvað mér fannst vinátta helst fólgin í. Og það var
samþykki! Allir vinir manns eru afskaplega ólíkir manni, það kemur
bara enginn nálægt því að vera maður sjálfur. Lausnin fyrir góðri
og langri vináttu er að samþykkja vini sína eins og þeir eru og
samþykkja mistök þeirra og gjörðir. Þetta er allavega mitt
sjónarhorn, þó að trygglindi, sem rústaði könnuninni sé náttúrulega
álíka merkilegt. En það var gömul klisja, ég þurfti að athuga
annara skoðanir.
Nóg af bulli, þetta blogg er orðið nógu sundurtætt og
margbrotið!
Andrea sem er andlega endurnærð eftir skriftirnar!
»
14.02.2007 16:27:04 / andrea89

Núna vitið þið hvaða mynd kemur upp ef þið gúglið ljóð!
Finnst ég endilega kannast við þessar stelpur, samt ekki
viss!
»
04.02.2007 23:59:05 / andrea89
Einu sinni voru tvær stelpur sem
hétu Sóley og Andrea. Þær voru í tíunda bekk en hefðu þess vegna
getað verið í fimmta! Algjörar pjásur! Þær þóttust alltaf vera
bestu vinkonur... en undir niðri kraumaði reiði!
Eitt sinn þegar Andrea hafði þurft
að hlusta á Sóleyju æfa óperustykkið sitt í marga
klukkutíma...
... tók hún hana hálstaki! Sóley
gaf frá sér ofsalegt hátíðniógeðisöskur um leið og húfan datt í
snjóinn.
Sóley náði að reisa sig upp um
leið og hún kippti votri húfunni upp og skellti á hausinn! Svona
glímdu þær um allnokkurt skeið, enda var Sóley líka orðin brjáluð á
Andreu, óperusöngurinn hafði verið útgönguleið frá ógurlegum
búkhljóðunum í Andreu!
Gvööööð, svo sáu þær sætu strákana
hinu megin í götunni, annar heimsmeistari í ropi og hinn hafði
sungið í hringleikahúsinu í Verona. Nú urðu þær sko feimnar og
héldu áfram að þykjast vera bestu vinkonur! Strákarnir voru á
leiðinni útá róló og hurfu því fljótt úr augsýn!
Þá fór Sóley á flug, því hún gat
nú loksins jafnað metin... hún stökk aftan að Andreu og skellti
þessum líka hlussu snjóbolta ofan á hausinn á henni! En alltí einu
kom veiðimaður úr skóginum og skaut þær með deyfibyssu og drap
þær!
Þær féllu í jörðina með opin augu
og bros á vör og voru núna loksins orðnar bestu vinkonur í alvöru,
sameinaðar í dauðanum!
-ENDIR-
»
31.01.2007 17:59:56 / andrea89
Ástæður þess að fara í fýlu:
- Það er stærðfræðipróf á morgun
- Ég er ekki byrjuð að læra fyrir það
- Það er þýskukönnun á morgun
- Ég er ekki byrjuð að læra fyrir hana
- Það er leiðinlegt veður úti
- Það er ekki snjór, ekkert kósý rugby og ekki eins kósý
göngutúrar.
- Ég sofnaði áðan sem þýðir væntanlega enginn svefn í
nótt
Ástæður þess að vera glöð:
- Ég er ágætlega sett í stærðfræði, vona ég
- Ég verð ekki lengi að læra þessar fuuuucking núþálegu sagnir og
asnalegu lýsingarorð, voooona ég.
- Það er silungur í matinn, og ansi girnilegt meðlæti.
- Ég er endurnærð eftir svefninn minn, sem tók til tilbreytingar
bara um 40 mínútur.
- Ég er með kall á hendinni sem segir „Ich habe hunger,
wrarrr"! Mér finnst hann fyndinn!
- Ég borðaði tíu sentímetralanga agúrku í dag!
- Ég fékk að láta hina klúru mig skína í stærðfræði í
dag!
Jebb... 7 afbrigði af neikvæðu mér og 7 afbrigði af jákvæðu mér!
Það er bara spörgsmálið hver er betri!
Allavega, ekkert hefur enn frést af myndavélinni minni og ég
held áfram að gráta mig í svefn!
Annars uppgvötvaði ég í strætó í dag eftir skóla að ég á ekki að
þurfa að eyða mörgum dögum í að vera fúl! Þetta er bara einn
veraldlegur hluturinn... alltílagi að vera fúl eeen ég meina...
Enginn dó!
Annars er ég staðráðin í því að þegar ég fer til Sigríðar
Klingenberg á tjarnardögunum ætla ég að spurja hana hvort hún geti
séð týnda hluti. Annars er hún ekki alvöru! Jú, kannski, en ef hún
getur ekki svarað því þá verður hún að geta svarað því hvað það
þýðir ef maður kyyyyyyyssir hest í draumum sínum! Og hvað það þýðir
að dreyma dauðann, og alltof margar óléttur!
Jebb... Sigga beibí, be aware... En læt þetta gott heita og ætla
að sökkva mér ofan í stærðfræðiglærur hinnar úsbekistanesku
Sanobar! Alveg ótrúlegt hvað sumir kennarar geta verið lunknir við
power point, á meðan aðrir bölva farsímum, æpoddum og tölvum
og reiða sig þrjóskir á tússpennatöfluna, ábyggilega nýbúnir að
taka þá afbrigðilegu tækninýjung í sátt eftir að krítartaflan sagði
sitt skeið!
»
29.01.2007 00:07:48 / andrea89
Hahahaha... þetta er búið að vera nokkuð
tíður fjölpóstur á Mæspeis undanfarið og ég ákvað að deila
þessu með hinu ó mínssvæðisvædda fólki. Fannst fyndið hvað
þetta passaði einstaklega vel við mig, og ábyggilega flest
90's börn!
Annars eru bestu fréttirnar núna að helgin var
skemmtileg, byrjaði á fimmtudeginum með söngballi MR og svo var
partý hjá Fanney á laugardaginn og einstaklega kósý í
gærkveldi!
Verstu fréttirnar eru þær að myndavélinni minni
hefur verið stolið! Já, dömur mínar og herrar! Vona að þetta sé
ekki satt og ég finni hana á hálfvitalegum stað heima hjá Fanneyju
en ég óttast að sú verði eigi raunin. gráááát... Ef einhver hefur
séð hana þá má hann hafa samband!
En engin ástæða til að fremja sjálfsvíg eða
eitthvað þaðan af verra. Hér kemur listinn umræddi!
Þú ert næntís barn ef:
Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _
]
Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á
laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...
Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu
Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á
kvisti"...
Þegar lögga og bófi var daglegt brauð
Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir
Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...
Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir
uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..
Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu
vinsælir
Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos
Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu
trikk
Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl
Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...
Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á
puttanum..
Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara
Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...
Þú áttir tölvugæludýr
...eða Furbie
Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með
Netið
Og Windows '95 var best
Michael Jordan var aðal hetjan..
Kærleiksbirnirnir
Þú safnaðir lukkutröllum
Og áttir vasadiskó
Þú kannt Macarena dansinn utanað
Þú veist af hverju 23 er kúl tala
Áður en að Myspace varð vinsælt,
Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..
Áður en ipod kom til sögunnar
Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,
Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið
Og þú leigðir spólur, ekki dvd,
Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti
Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið
okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu
Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast
Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!
»
07.01.2007 21:41:28 / andrea89
Þá þóknast mér loksins að blogga... nenni ekki að skrifa um
jólin né áramótin.. allt saman bara fínt!
Þrettándinn var hins vegar í gær... og það var alveg
stórkostlega mikið stuð! Hélt fyrirpartý fyrir bekkinn og svo fórum
við á Ampop-Sprengjuhöllin-Últra Mega Technobandið Stefán... Siggi
sykur var náttúrulega svo góður að redda miðunum! 
Hvort sem þið trúið því eða ekki, þá ætla ég að gleðja ykkur með
þeim sannleika að ég er búin að setja inn myndir og eru þær í
splunkunýja flokknum Myndir 2007!
Njótiði, hlæjiði og deiliði

Var svo vakin klukkan 12.23 eftir 6 1/2 tíma svefn, sem
telst nú hvorki mikið né lítið nú til dags og gekk uppá
Úlfarsfellið með Ágústu og mömmum! Gífurlega hressandi en gerði það
einnig að verkum að núna er ég að leka niður af þreytu, þó svo að
ég eigi eflaust ekki eftir að geta sofnað á skikkanlegum tíma í
kvöld! Svona er þetta...
Nenni ekki að rausa meira hérna... en endilega munið eftir
þrettándamyndumum!
Hérna gefur svo að líta nokkrar myndir frá gönguferðinni í
dag!
Svona var maður sjúklega ferskur
með eplakinnar og síþorsta
Dúllumæðgur, Ágústa og
Hafdís
Ahh.. þetta var afskaplega vel
þegin hvíld!
Komumst allavega uppá
topp!
»
17.12.2006 22:46:10 / andrea89
Jæja, núna nennti ég loksins að vera dugleg og
setti inn þessar örfáu myndir af jólaboðinu sem ég hélt fyrir um
viku og svo próflokadjamminu síðan í fyrradag

Inga og Guðrún í jólaboðinu, Tinna
félagsskítur eitthvað að dundast í símanum þarna fyrir
aftan


Endilega tjékkiði á þessu!
»
09.12.2006 13:54:56 / andrea89
Próf eru góð, próf gleðja mömmur því maður er
loksins heima hjá sér! Próf gleðja kvenno.is, laupinn og innu,
því maður hangir loksins þar, en bara með von um að það sé
eitthvað þar sem gerir manni kleyft að læra í tölvunni! Myspace
EEEELSKAR MANN, því maður hangir inná því
alladaga. FreeCell elskar mann... tjahh, hann elskar
kannski ekki alla, en hann elskar mig því ég fer í hann svona
tíu sinnum yfir daginn! Jólaballið verður sjálfsagt langþráðasta
ball af öllum böllum yfir árið hjá mér!
Já... ég verð löt í jólafríinu og verð ekki að vinna... eða,
ekki meira en ég geri nú þegar! Vííí... það verður geggjað! 
Þarf ekki að vinna jólahelgina, sem er gott, en ég þarf að vinna
á gamlárskvöld, en það er nú bara alltílagi, hlakka eiginlega bara
til!
Það var matarboð hérna í gær, heppnaðist nú bara ágætlega held
ég! Fóru vonandi allir sáttir heim!
Hef þetta ekki lengra, en slútta með mynd frá því á busaballinu,
sem var líka, eins og jólaballið, búið að láta bíða eftir sér!


mjög eftirminnilegt kvöld! 
Bendi fólki svo á nýja skoðanakönnun, endilega
takið þátt!
Kv. Andrea
»
05.12.2006 11:43:08 / andrea89
Eftir daginn í dag, er ég viss um að verndari/ar mínir eru gott
fólk, dálitlar brussur, en samt gott fólk!
Þannig var það að ég stillti símann minn á hálf sjö í gærkvöldi!
Svo hringir hún ekkert og ég bara sef! Ef ég vakna ekki við
vekjaraklukku þá vakna ég í fyrsta lagi svona hálftíu. Og mamma var
ekki á leiðinni að vekja mig, því í hennar huga er rosalega mikill
munur á því að þurfa að mæta hálf níu, og tíu mínútur yfir
átta! 
Svo ligg ég þarna í sakleysi mínu, steinsofandi, þegar ég er
klipin í nefið klukkan 07.07! Reyndar hefði þessi svakalegi
verndari minn getað verið aðeins blíðari, því ég fékk fossandi
blóðnasir, en ég vaknaði allavega við blóðið, fossandi úr nösum
mínum, og rétt náði að fara í sturtu, borða, láta blóðnasirnar
hætta og allt sem ég ætlaði að gera áður en ég mætti galvösk í
prófið! Sem reyndar gekk ekkert svo vel, en það er annað
mál!
Þetta er fróðleiksmoli minn fyrir daginn í dag og hjálpar mér að
styðja mál mitt, því ég hef alltaf haldið því fram að það sé fólk í
kringum mann sem vernda mann!!!
Aber jetzt mache ich meine aufgaben für Deutsch. Því blessuð
þýskan er næst á dagskrá! 
Vielen Dank
Andrea Kristjánsdóttir
»
24.11.2006 01:05:55 / andrea89
Þó að ég
sé ekki búin að blogga neitt almenninlega í langann tíma, er
sama og ekkert búið að gerast hjá mér.. þannig að ég ætla að
gleðja ykkur með því að ég var að setja inn dálkinn
FYNDNAR MYNDIR hér í aðalvalmynd... þið getið
dundað ykkur við að skoða hann þangað til ég geri eitthvað
skemmtilegt! 
Mamma er farin
til Boston og ég er blönk og á leiðinni í próf þannig að það verður
óoóógeðslega kósý hjá mér um helgina... einher í sömu aðstöðu
óskast í kósýlegheit!
Ég hef
mikið verið að spá í því undanfarið hvort ég sé í
lagi!
Mér finnst
fólk í fjólubláum flíssloppum fyndið... mér finnst dansandi
broskallar fyndnir... Mér finnst fyndið að keyra með hættuljósin
á... mér finnst fyndið að keyra með rúðuþurrkurnar gangandi, þegar
það er engin rigning! Ég er með smökkunaræði á háu stigi... ég get
borðað kvöldmat þrisvar, bara því mig langar að smakka... ég er með
viðbjóðslegan perrahúmor... Ég elska nördahúmor... mér finnst
fyndið þegar fólk hreyfir sig skringilega... mér finnst einstakar
setningar sem fólk segir sjúklega fyndnar og fæ þær á heilann... ég
get dundað mér lengi við það að þrífa lyklaborðið! Mér finnst
gamalt fólk skemmtilegra en flest börn!
-Er ég
sjúk?
Andrea
»
14.11.2006 22:04:04 / andrea89
Jæja fólk, nú er ég for real búin að finna leikINN!
hann slær út bubbles
hann slær út splash-back
ég vil ekki segja þetta en hann slær út slime! 
hann slær út funny farm
hann slær út bake sale
http://leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=852
ÉG HATA YKKUR EF ÞIÐ PRÓFIÐ ÞENNAN LEIK OG FESTIST EKKI Í
HONUM!
Ég vil samt engan veginn meina að ég sé jafn slæm á leikjanet.is
og ég var... það er ekki málið! Málið er hin 1100 blaðsíðna bók,
Chemistry - The Central Science...
Kveðja
Andrea Kristjánsdóttir (ekkileikjanörd)
»
11.11.2006 11:51:18 / andrea89
Núna er ballavertíðinni lokið og skemmtanaþyrstir
menntaskælingar eins og ég verða að bíða fram yfir jólapróf, þangað
til næsta ball kemur! Og trúið mér, í huganum er það ekki stutt
tímabil!
85' ballið var sem sagt haldið með pomp og prakt á Brodway á
fimmtudaginn og þar var svaaaka stuð. Fórum í fyrirpartý hjá Ernu,
gömlu bekkjarsystur hennar Fanneyjar, og takk Erna, þetta var
geggjað!
En myndir getið þið séð á http://blog.central.is/soleyjuz?page=viewPage&id=1160996 og
ég bíð spennt eftir fleiri myndum, svo ef þið vitið um einhverjar
þá megiði segja mér! =D
Spái því svo, og líkurnar á vitlausri spá eru 0,000000014 %, að
helgin fari í rólegheit, enda hef ég hvorki líkamlega né andlega
burði í meira djamm í bili, eða eins og Sóley segir, allavega fram
á næstu helgi! 
En nenni ekki að hafa þetta lengra því ég er svo dugleg að þrífa
fyrir mömmueðaekkiensamt...

Andrea Kristjánsdóttir
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|